Aðalvalmynd

Bloggz

EnglandErla Steinþórsdóttir

Ég hef ekkert skrifað síðan í ferbrúar... ég held að þetta sé Facebook að kenna. Öll samskipti við fólk sem er ekki nálægt manni er komið þangað. Sem er svosem alveg ágætt. Held ég haldi því bara áfram. Ef þið viljið tala við mig og spurja mig frétta þá finnið þið mig bara á fésinu:)

Skotlandsferðin í hnotskurn!!!!!Erla Steinþórsdóttir




Lokun grunnskólans á KópaskeriErla Steinþórsdóttir

Nú hefur Norðurþing ákveðið að loka grunnskólanum á Kópaskeri. Þetta er hrikalega sorglegt og mér finnst þetta sýna vanhæfni þessarar sveitastjónrnar. Það voru þrír einstaklingar innan stjórnarinnar sem börðust á móti þessu og háskólinn á Akureyri sendi frá sér skýrslu sem sýndi fram á að ef að þessu yrði, mundi það hafa skaðleg áhrif á samfélagið á Kópaskeri. Það er verið að hafa af Kópskeringum og nærsveitungum grunnþjónustu sem allir hafa rétt á. Þetta mun leiða að því að fjölskyldufólk mun ekki velja Kópasker til að búa á og að leikskólinn á Kópaskeri mun á endanum verða útundan í kerfinu og sennilega leggjast af. Og þá er ekkert eftir. 

Hrönn Guðmundsdóttir sendi skilaboð á Facebook um þetta til margra ungmenna sem hafa alist upp á Kópaskeri og hvetur alla til að mótmæla þessu. Ég hvet alla unga jafnt sem aldna til að hjálpast að. Þessu verður að breyta,

Stöndum saman og reynum að fá þessu breytt!! 

Af alls kyns átökumErla Steinþórsdóttir

Við hérna í Lellukoti erum komin í átak. Ég var rétt í þessu að stelast til að borða einn flapjack með súkkulaði, og er því faktískt séð fallin. Mig langar fátt meira núna en að fara útí sjöppu og kaupa mér Kit Kat, English All Sorts, Skittles og kók. Það er ekkert annað að gera á sunnudögum. Á sunnudögum á maður að slappa af og hafa það gott... helst með nammi. Og af því að ég er við það að bresta þá ákvað ég að skrifa um það frekar en að láta af því verða. Ég horfi á flapjack bréfið með samviskubiti og ætla að fá mér appelsínu og popp á eftir.

Svo er ég líka í peningaátaki og það er erfitt! Ég er að skrifa niður allt sem ég eyði og það er ótrúlegt hvað ég næ að eyða miklum pening í ekki neitt. Ég er reyndar að hugsa þetta samkvæmt genginu, ætti kannski ekki að gera það. Það kostar til dæmis 1.300kr. að kaupa mér miða í lest og tube til London. Það er jafnmikið og maður borgaði fyrir rútumiðann frá Akureyri til Húsavíkur í denn. Sígarettupakkinn kostar 955kr. Jæks!! Það kostar 163kr. hver strætóferð og maður fær engan skiptimiða. Það kostar inná skemmtistaðina í London, í gær borgaði ég 815kr. með afslætti og drykkurinn kostar 490kr. það er einfaldur vodki í appelsínusafa. Gáfumennin sem voru á djamminu með mér, létu okkur bíða á vitlausum stað eftir næturstrætó heim þannig að við enduðum með að taka leigubíl, 1700kr. á mann, vorum fimm saman. Mig langar að fara aftur til London í dag og margrómaðann markað í fallegu hverfi sem ég hef aldrei séð, en ég tými því ekki!!

Glatað!   

Enda af Norðausturlandi :DErla Steinþórsdóttir

ÉG ELSKA STEINGRÍM!!!! ÉG ELSK'ANN!!!!! VÍÍÍÍÍ :)

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/02/17/raeda_eftirlaunalogin/ 

Það snjóar í London...Erla Steinþórsdóttir

England lamaðist af því að það snjóaði aðeins. Hér eru engin vetradekk hvað þá skóflur! Ótrúlegta skemmtilegt. Við fórum í göngutúr á mánudaginn og fylgdumst með bæjarbúum spóla einsog vitleysingar í fimm sentímetra snjólagi sem var á götunum. Það var aðeins meiri snjór í görðunum og svoleiðis og fólk lét sig ekki vanta í snjókallagerð og hörkulega snjóbardaga. Og þó að það sé allt í snjó, þá er fólk ekki ennþá farið að setja húfur á börnin sín! 

En þetta var mjög skemmtilegt og leifarnar af snjónum sem eru við það að breytast í krap minna mig á Ísland. Þetta má alveg fara að hypja sig bráðum. Allt er gott í hófi :)

Og svo er komin í fyrsta skipti á Íslandi ríkisstjórn sem hefur jafnrétti fyrir sér. Það eru jafnmargar konur og karla í ráðherrastöðum! Það er komið 2009 og þetta er að gerast fyrst núna. Betra er seint en aldrei segi ég bara. Sé fyrir mér það sem mun standa í sögubókum barna minna "Árið 1907 fengu konur kosningarétt, svo liðu 100 ár þangað til að þær urðu jafnar körlun á þingi". Já...betra er seint en aldrei en gleðiefni engu að síður.  

Annars er ég að fara til Glasgow og Edinborgar í næstu viku í fjóra daga í skemmtiferð í tilefni að því að flugið kostaði fáránlega lítið og það er lesvika. Ég, Aldís og Auður ætlum að fara og gista hjá Camille og svo skreppum við yfir til Edinborgar að heimsækja vinkonu Aldísar sem er heimakona þar. Aldís og Auður eru sennilega uppátækjustu manneskjur sem ég þekki þannig að þetta verður áhugavert.  

Skrifa kannski aftur eftir ferðina.. Hagið ykkur vel á meðan:)  

Smá vísa fyrir jafnréttið í lokin:

Eftir taumlaust teiti og búst
Karlarnir eftir konunum biðu 
Til að koma með skúringarkúst  
Hundrað árin loksins liðu.

 

Ójbara Ísland...Erla Steinþórsdóttir

Mikið finnst mér ömurlegt að vera íslendingur þessa dagana. Mér verður hugsað til 2003 þegar ég var aðeins farin að spá í pólitík og Írakstríðið byrjaði. Þetta var nógu hræðilegt að hlusta á fréttir af þessu en hvað mér leið illa þegar ég heyrði að Ísland studdi Bandaríkin í árásunum. 

Nú styðjum við fjöldamorð á Gaza. Utanríkisráðherra sagði svolítið sem mér varð flökurt af að lesa:

"Það þjóni þó engum tilgangi að Ísland slíti einhliða sambandi sínu við Ísrael. Það sé ekki gert nema í þeim tilfellum þegar framferði ríkis sé farið að valda öðru ríki beinu tjóni."

Hún vill sem sagt meina að Ísrael sé ekki að valda Gaza beinu tjóni. Hvað eru þau þá að gera? Ég er mjög sorgmædd yfir því að utanríkisráðherran okkar láti svona útúr sér. Ég held ég sé alfarið búin að missa alla trú að því fólki sem talar fyrir hönd Íslands. Út með þetta lið, þetta pakk sem er bara samsafn af hálvitum að mér sýnist. Ég vil ekki að fólk sem fynnst morð og ofbeldi í lagi, tali fyrir mína hönd.

  

Ég er að koma heim!!Erla Steinþórsdóttir

Ég er alveg að koma heim!! Ég er að koma heim!! Ég er að koma heim!! 

og ég hlakka voðalega til...:) Mín bíða tveir nýfæddir kettlingar, fjölskyldan, og íslenskur matur!!!!

 

Takk PólverjarErla Steinþórsdóttir

Við Ágústa stoppuðum á götumarkaði í gær í London og ákvað síðan Ágústa að kaupa sér smá nammi sem þar var í boði. Það var yndælismaður að afgreiða og hann spurði okkur hvaðan við værum. Jú frá Íslandi og hann er frá Póllandi.

Mér þótti að sjálfsögðu ekki annað við hæfi en að þakka honum fyrir peningaaðstoðina sem Pólland er nú að veita Íslandi og hann var frekar hissa þegar hann heyrði þetta, ekki vissi hann að Pólland hefði efni á að lána okkur 200 milljónir dollara.

Þegar kom að því að borga þau þrjú pund sem nammið kostaði, sá hann aumur á okkur og gaf Ágústu eitt pund í afslátt:)  

FlickrErla Steinþórsdóttir

Komin með myndasíðu

http://www.flickr.com/photos/28073762@N06/

Lítið við... 
Síða 1 af 8

Auglýsing

Myndasíður

Skemmtilegt